Sjötti bekkur U (2006 - 07)

Því Jói hefur ekkert betra að gera

17.12.2007 20:45:49 / tommi

Hversu margar færslur hafa heitið "Bústaðarferð"

Jæja mér hefur greinlega skjátlast. Þessi síða mun ekki deyja fyrr en með fjórðu kynslóð eftir okkur (ef gert ráð fyrir að öll börn okkar og barnabörn fara í MR og lenda í 5. bekk U)

 

Good times

Það hefur verið eitthvað tal um að taka eitt stykki bústaðarferð for old times sake. Eftir tvo daga að safna mér saman kjark spurði ég múttu hvort ég mætti hafa eina slíka í bústaðnum okkar á Flúðum og svaraði hún einfaldlega “Já auðvitað máttu það”. Ég spyr því; Er áhugi fyrir því að djúsast aðeins á Flúðum þann 29. desember? Eða vill fólk frekar eftir áramót þann 4. janúar? Potturinn þarna er reyndar ónothæfur en þetta er alveg kósí partýstaður held ég.

 

Ég segi þá skemmtið ykkur vel þið sem eruð í prófum og sjáumst 21. des á Hverfis.


» 19 hafa sagt sína skoðun

20.11.2007 20:52:37 / hildur

þarnæsta færsla á eftir síðustu færslunni...

HallóHalló kæri 6.U

Vona að það kíki einhver hingað inn ennþá...tek allavega sénsinn á því ;)

En ég vildi bara bjóða ykkur öllum og ykkar nánustu fylgifiskum (kæró;) að fagna með mér þeim áfanga að ég verð orðin tvítug, þann 21.desember á Hverfisbarnum. Um að gera að fara að hittast aftur. Ég held alveg örugglega að allir séu búnir í prófum þarna þannig að það ætti ekkert að vera því til fyrirstöðu en að taka smá tjútt fyrir jólin!!

Vonast til að sjá ykkur sem flest, það er orðið allt of langt síðan við höfum hist.

Kveðja Hildur


» 7 hafa sagt sína skoðun

10.09.2007 22:34:44 / þóra

Færslan eftir seinustu færsluna...

 

Jæja

Nú erum við Anna að fara í Interrail á morgun og verðum í burtu í 5 vikur.

Bloggsíðan okkar : www.blog.central.is/annieandthora

kíkið ef ykkur leiðist í lærdómnum :D 

Luv 

Þóra (og Anna) 

Ps.  Við vitum að þið bíðið með allan bekkjarhittning þangað til að við komum aftur ;)

 


» 6 hafa sagt sína skoðun

10.08.2007 10:30:45 / unabuna

CHANGE OF PLANS

ok kids..smá breyting

þar sem ég á afmæli 17.ágúst en verð farin út 16. langaði mig pínu að hafa partý en get ekki haft það heima hjá mér svo það verður haldið hjá ingu vinkonu minni

ég og tommi ákváðum að sameina partýin tvö bara og því verður það bekkurinn plús nokkrir aðrir:)

gleðin verður semsagt á Melhaga 1 á laugardagskvöldinu..GAY þema samt sem áður (glamúr og litagleði) ;);)

látið orðið berast til bekkjarfélaga ykkar

una


» 5 hafa sagt sína skoðun

25.07.2007 10:31:56 / hildur

Verslunarmannahelgin !

Jæja dúfurnar mínar, nú fer að líða að stærstu helgi ársins og þá er spurningin:

Hvað á að gera af sér þessa  helgi??

Endilega tjáið ykkur þannig að ef við erum kannski á sama stað gætum við hist :D

..bjartsýna Hildur ;)


» 17 hafa sagt sína skoðun

03.07.2007 20:22:49 / þóra

Akranes here we come...

Hæ útiLEGU farar!  Ok nú kemur planfærsla númer 2:

 

 
  1. Við förum á írska daga á Akranesi 6-8 júlí. Erum við ekki búin alveg 100% að ákveða það?
  2. Við verðum __ mörg. Allir sem ætla með eiga að kommenta og segja gestafjölda, því fleiri því betra! (Tommi þú lofaðir að koma, mannstu?;) )
  3. Hverjir ætla á bíl og hvern vantar far?
  4. Kl hvað ætliði að mæta?

 

  Og svariði nú!

 

 Ég fer með Önnu á föstudaginn eftir vinnu og við verðum því líklega komnar um 21. Svo að ég var að spá hvort e-r sem ætlar að mæta snemma geti ekki tekið frá tjaldstæði fyrir okkur? Plís?;)

Linda kemur á laugardaginn með grindó-gellunum og því þarf líka að taka frá fyrir þær, er það ekki Lindó?

 

  Það er allavega lang skemmtilegast að vera öll saman og kannski í hring, ógó stemmó!

 

 Kommentiði nú eins og brjál..

 

 Íha ég hlakka til

 

PS. Við ætlum að skrá Jóa í rauðhærðra keppnina:D

 

 Luuuuv

   Þóra


» 5 hafa sagt sína skoðun

27.06.2007 20:25:26 / annabirna

AMMÆLISPARTY!!!

Hellu kids, eruði ekki til í villt party???

Ég ætla nebbla að halda upp á afmælið mitt á laugardaginn, 30. JÚNÍ, og mig langar svo svakalega að hitta ykkur öll. Verkefni kvöldsins er að RÚSTA íbúðinni minni og ég veit að nokkrir í bekknum eru tilvaldir í það, don’t you let me down!

Fjörið byrja bara svona milli 9 og 10 í Njörvasundi 34, að sálfsögðu verður boðið upp á LJÚFFENGT ÁFENGI og crazy ass tónlist. Leyfilegt er að koma með gesti ef þið viljið, enginn strangur dyravörður hér, reynum bara að troða!

Ef einhver villist eða eitthvað, jújú það hefur komið fyrir! þá hringiði bara í mig, síminn er 6960687.

Sjáumst svo bara ógeðslega hress á laugardaginn, er þaggi???

luvya

AnnieBee.


» 19 hafa sagt sína skoðun

12.06.2007 21:23:03 / þóra

Plan-færslan

Hellúú krakk’s! 

 

Hvað er títt? Er ekki komin tími á svona hallærislega “hvað er planið” færslu?

 

  En ég ætla að starta þessu og svara nokkrum vel völdum spurningum (völdum af mér, hehehe) og þið verðið að svara, annars svara ég fyrir ykkur! Og það er ekkert djók...

 

Þið getið bara copy-að spurningarnar og svarað í kommenti eða búið til nýja færslu ef þið eruð svona athyglissjúk...

 

 
  1. Vinna í sumar?

Ég er að vinna í Útilíf í Smáralind og ætla að vera svaka sportí sem er ekki alveg mitt thing;) En ég er alltaf á kassanum ef þið komið í heimsókn..

 

 
  1. Næsti vetur?

Ég ætla að vera svona milli skóla og vinna eins og mófó. Hlakka sjúklega til að vera í “fríi” og geta loksins tekið bílprófið og kannski keypt mér bíl! :D  En svo fer ég líklega í lögfræði á næsta ári, þ.e. ef ég kemst inn og ef ég hef ennþá áhuga á því ...

 

 
  1.   Til útlanda?

ÓJÁ!  Ég og Anna Birna förum í Interrail 12. september og verðum í mánuð. Sumum finnst það lítið en ég efast um að við pæjurnar eigum eftir að endast mikið lengur á farfuglaheimilum;) Við byrjum í London og förum e-rn þægilegan hring um mið-Evróu og endum á shopping spree í Hollandi. Við verðum með bloggsíðu úti ef þið viljið e-ð vita af okkur;)

 

 
  1. Ætlaru að mæta í tjaldferðina 6-8 júlí?

                       Auðvitað!  

 

 

 

Æi er ekki að finna fleiri núna, bætið við ef þið viljið...  Ekki vera súr og svarið'essu

 

 

  Leiter 

Þóra


» 50 hafa sagt sína skoðun

04.06.2007 07:48:52 / lilja karen

Útileiga

Eins og ég sagði í síðasta commenti á síðustu færslu þá reyndi ég að redda sumarbústaðinumn á Hellu en það gekk ekki - var víst fullbókaður í "allt" sumar, á frekar erfitt með að trúa því en ég held að Ess-in hafi eitthvað með þetta að gera bwhahaha

en þetta þýðir þá bara útileiga!

hvert viljiði fara? og hvenær?

hugmyndir: camping.is <-- endilega tékkið þessa síðu

Ég og fullt af fólki erum allavega að fara til Akureyrar helgina 15-17 júní.

Þá eru bíladagar svo það verður nóg um að vera - höfum meira að segja planað raftingferð á laugardeginum sem er auðvitað gaman að gera saman! Það verður tjaldað - drukkið - sungið - og djammað ;)

en endilega commentið hvað skal gera.. því ég er opin fyrir öllu.

 

Því fyrr því betra... en það er pottþétt ferð þann 15. júní til Akureyrar svo þeir sem vilja slást í hópinn sendið mér meil á liljakaren@mr.is eða liljakaren@gmail.is


» 31 hafa sagt sína skoðun

31.05.2007 17:46:57 / lilja karen

Sælir stúdentar!

Á morgun þá mun ég koma með upprunalegu faunumyndirnar ykkar og láta ykkur fá svo þið getið nú sýnt gestum í útskriftarveislunni góðu :)

svo er ég náttla með myndirnar þínar Þóran mín hehe ;)

Og ekki gleyma að reyna að ná bekkjarmynd fyrir utan HÍ á morgun... þið munuð ekki sjá eftir því hehe

(ég veit að ég er húkkt á því að ná helvítis bekkjarmyndum en við höfum gaman af því að skoða þetta gömul og krumpuð á elliheimili tíhíhíh eeeen ég mun senda á ykkur dimissio bekkjarmyndina við tækifæri en jónatan verður að senda bekkjarmyndina sem var tekinn síðasta skóladaginn)

 

En annars vil ég bara óska ykkur öllum til hamingju aftur fyrir að geta komist í gegnum þessi MR-ár okkar og staðist!

Svo hittumst hress á morgun við útskriftina í háskólabíó

munið bara að mæta allavega kl 13:30 svo allt fari nú rétt fram;)

Mér þykir alveg rosalega vænt um ykkur elskurnar :lol:

- Takk fyrir síðastliðin 2 ár - by far bestu árin mín í MR!! og það er engin lygi!!!:haha:

Luv'ya:P

kv. Lilja Karen


» 17 hafa sagt sína skoðun

28.05.2007 21:11:20 / unabuna

PARTÝ!?!

 

 

Hæ, var svona að pæla...langar enga í bekknum til að gera e-ð?? Datt í hug að þar sem sumarið er komið - og fríið sem því fylgir þá gætum við skellt okkur í sund og tanað pínu saman?? hvað finnst ykkur??

 

laugardagslaug á morgun?? 

 

 

 

 

p.s. ætlar e-r á júbilentaballið??

 

p.p.s. nennið plííís að leggja inná mig 540 kr. á 

rknr. 512-14-602831

kt. 170887-2209

(nú hljótiði að vera farin að kunna þessi númer utanað, ég er búin að biðja svo oft um þetta)

 

 

unan :D

 

 


» 11 hafa sagt sína skoðun

27.05.2007 16:46:23 / lilja karen

Bíladagar!

Krakkar fyrst að það er eigilega ógerlegt að redda bústað fyrir okkur öll og ég var búin að heyra á liðinu að flestir voru til í sveitt tjaldferðadjamm!

 

svoooooo hvað segiði með að manna á bíladaga helgina 15-17 júní á Akureyri!!!

Það verður náttla meeeergjað stuð og við getum fundið okkur eitthvað tjaldsvæði og verið öll saman, rætt um liðna tíma og glaðst yfir því að hafa fokkin klárað MR!

Svona lopapeysu-gítar-bjór-stemning!

 

Hvað segiði.... djamm á Akureyri! Hell yeah!

Leggjum öll af stað á sama tíma og troðum í bíla: BÍLALEST evúhúvhú! ég held að þetta yrði fokkin snilld!

 

Now who's with me??!!!

 


» 10 hafa sagt sína skoðun

24.05.2007 00:39:21 / þóra

Óje

Bækurnar mínar verða þarna á föstudaginn....


» 5 hafa sagt sína skoðun

23.05.2007 00:21:10 / gunnar

Hæjó

Hæ hæ og til hamingju með prófið í dag.  Koma svo standa sig í síðasta prófinu ;) ;) :)

Annars langar mig að bjóða ykkur í afmælis/náttfatapartý hjá mér á föstudag er ekki stemning fyrir því:haha:  Ef þið eruð spennt fyrir því látið mig vita í kommentum og ég tala við húsráðendur.:lol: 


» 21 hafa sagt sína skoðun

23.05.2007 00:06:28 / maskina

Don't hassel the Hoff baby:)

don't hassel the Hoff baby

David Hasselhoff óskar ykkur til hamingju með að vera búin með munnlega stærðfræði!!!

Hann biður ykkur einnig endilega að tékka á tónlistinni sinni og mælir sérstaklega með laginu "Jump in my car"(mér finnst ég hafa séð þessi múv áður hjá ónefndum bekkjarfélaga...). Þetta stórkostlega lag hefur fengið feykigóða dóma frá gagnrýnendum enda gæðapopp hérna á ferðinni!!! David, The Hoff býður ykkur að skoða heimasíðuna sína, sem aðdáendur hans halda uppi með pompi og pragt:)

maskina=Jóhanna....


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 17