Sjötti bekkur U (2006 - 07)

Því Jói hefur ekkert betra að gera

29.11.2005 10:04:26 / tommi

Hinir týpísku MR-ingar

Stelpan:

Stelpan er á málabraut er mjög skynsöm þegar það kemur að náminu. Hún er hress, arty týpa sem er mjög sátt með lífið. Hún gengur oftast með soldið skrýtna húfu og í einhvers konar pilsi (helst grænu) og sokkabuxum í einhverjum skemmtilegum lit. Hún dýrkar Jagúar og Hjálma og fönk yfir höfuð. Hún tekur mikið þátt í félagslífinu, mætir á öll bingó og listakvöld og er öruglega í Listanefnd. Hún tilbiður suma kennara sem hún er með og finnst mjög gaman að tala um þá. Hún er frekar vinstri sinnuð og getur verið mjög kaldhæðin þegar það kemur að tala um fávitana í BNA og svoleiðis. Hún er í Herranótt og drekkur eiginlega aldrei.

 

 



Strákurinn:

Hann er á eðlisfræðibraut og klæðist oftast íþróttapeysu (oft nike) og gallabuxur og einhverja íþróttaskó. Hann er mjög góður í eðlisfræði og stærðfræði og svoleiðis greinum en fær ekkert svo gott í frönsku og öðrum tungumálum. Þegar hann er ekki að læra er hann eitthvað að stússast í tölvunni eða fara á kóræfingu. Hann dýrkar skólann og kemur ekki neinn annar skóli á landinu nálægt því að vera jafn góður og MR. Þú munt öruglega sjá hann í skyrtu og/eða bindi á miðvikudögum og honum finnst stæðrfræði brandarar (sérstaklega eitthvað sem kemur að diffrun) mjög fyndnir. Það bar ekki sértstaklega mikið á honum í grunnskóla en hann er semi að missa sig í MR.

 

 




» 6 hafa sagt sína skoðun

28.11.2005 15:17:53 / unabuna

góðan daginn og halló

hæ, ég vil bara þakka fyrir mig. er mjöög sátt með þetta tvífarahorn og að hafa fengið töru reid sem tvífara...hvernig datt ykkur það í hug strákar?? (býst sterklega við því að strákarnir hafi gert þetta) :D

ahh..þið verðið að umbera þennan eina broskall...þetta er rétt hjá þér þóra..það er erfiðara en maður heldur að sleppa brosköllunum..þeir eru bara svo skemmtilegir!

unan


» 4 hafa sagt sína skoðun

24.11.2005 19:01:12 / jónatan

Bekkjarmyndataka

Jæja krakkar, Skólablaðið vill fá myndir af öllum bekkjum skólans og við erum víst hluti af þeirri heild.  Ég legg því til að þið komið með hugmynd að einhverju þema sem við gætum haft á myndinni.  Við tökum hana svo í næstu viku.

Persónulega finnst mér ég ekki líkur Harry Potter... hann er dökkhærður.  Held að ég sé mun líkari Tinna.

» 23 hafa sagt sína skoðun

24.11.2005 18:52:45 / þóra

Good times..

Gamli yfirmaðurinn minn ( sem er reyndar kona (yfirkonan mín)) var að tala um hvað stelpurnar á vinnustaðnum væru hoknar í baki (og ég líka (já því ég er líka stelpa)).. og hún sagði orðrétt: "það er bara eins og þið séuð ekki komnar af homo sapiens stiginu!"

fannst svona réttast að deila þessu með ykkur...

úff önnur broskallalaus færsla..klöppum fyrir mér


» 7 hafa sagt sína skoðun

22.11.2005 16:36:05 / anniebee

Ekkert rugl!

Vegna skorts á góðum færslum undanfarið langaði okkur að bæta úr því. Byrjum á því skemmtilega, okkar frábæru BÚSTAÐAFERÐ.

  *Þegar Linda, Sandra, Þóra, Embla og Anna mættu á staðinn voru Inga og Una orðnar vel HRESSAR.

  *Strákarnir mættu fashionably late um 12 leytið og voru búnir að hella vel í sig úti í bíl.

  *Það fréttist fljótlega að það var maður sem hafði dáið í húsinu fyrir 100 árum ( já það var svo gamlt!!) og allir voru skíthræddir.

  *Hugrökku strákarnir í bekknum okkar drifu sig uppá loft en komu fljótt aftur niður.

  * Þá fóru stelpurnar að leita að draugnum og fundu hann í skrítna glasaskápnum í eldhúsinu. Þær ráku drauginn í burtu, þvílíkt hugrekki!! Þá gat partyið byrjað!!

  *Næst var græjunum hans Tomma blastað í botn og það var gaman.

  *Svo skellti fólk sér í pottinn og varð skemmtilegra og skemmilegra

  *Þar kom margt fram í “ég hef aldrei leiknum” en það er of gróft til að hafa eftir hér.

  *Þá datt Valda það snjallræði í hug að búa til freyðibað, þá urðu allir sleipir og sætir, það var í alla staði vel heppnað.

  * Valdi og Sandra tóku líka uppá því í sameiningu að brjóta nokkur glös sem var sniðugt því allir voru á tánum. Þá flæddi blóðið.

  *Inni tóku Haukur , Jói og Tommi villtan dans við villt lag. Það var HOT!!!

  *Allir djónuðu í tryllta dansinn.

  *Við munum ekkert eftir þetta, en nóttin var góð…..

Endilega bætið við einhverju ef þið munið meira en við

Allavega… okkur langaði líka að segja frá því sem okkur finnst gaman að:

*Við ELSKUM The Killers t.d. lögin Jenny was a friend of mine, Mr, Birghtside, Smile like you mean it, Somebody told me, All these things that Iv´e done, Andy you´re a star, On top, Change your mind, Midnight show, Everything will be alright og Glamorous indie rock and roll … uuu bara öll nema Believe me Natalie.

*Við elskum KitKat æðið hennar Söndru!

*Við elskum Harry Potter, hver ætlar EKKI á frumsýninguna?!?

*Við elskum að ferðast! It’s very goood.

*”Nýja” æðið okkar er ostasslaufa og kókómjólk…

*Við elskum að læra ekki

*Við elskum að sofa!

*Við elskum YKKUR.

Framhald fljótlega…

Kveðjur Þóra og Anna Birna.

P.S. Takið eftir að þetta er broskarlalaus færsla.


» 33 hafa sagt sína skoðun

20.11.2005 14:56:57 / hildur

Hey krakkar

Eru heimadæmi í stærðfræði fyrir morgundaginn?? var það ekki dæmi 403? Vitiði hvenær við áttum að skila þeim?

Sjáumst "hress" á morgun...Hidur


» 8 hafa sagt sína skoðun

19.11.2005 15:51:15 / þóra

Úhúú´..

Hey hey ;) sumarbústaðaferðin var snilld.... takk fyrir góðar stundir;)

kv. Þóra


» 5 hafa sagt sína skoðun

17.11.2005 17:24:13 / unabuna

Sumó

hæhæ, getur einhver komið með græjur svo við getum blastað tónlist þarna uppfrá???

ég ætla að reyna að vera komin þangað um 6 leytið á morgun og mæli með að fólk verði ekkert alltof seint á ferðinni.    það má líka enn bæta fólki við ef þið hafið einhvern í huga;)

útbúnaður:

1. matur

2. drykkur

3. sundföt

4. svefnpoki

5. tónlist

6. spil (ef einhver á eitthvað skemmtilegt)

7. hugmyndir að drykkjuleikjum sem auðvelt er að læra þó maður sé búinn að fá sér í glas;)

8. hmm...veit ekki alveg...eitthvað fleira??

allavega, sjáumst hress og kát í skólanum á morgun

unan


» 7 hafa sagt sína skoðun

17.11.2005 14:36:13 / jóhann

Þrír stærðfræðitímar í einni viku?!?!?!?!

Var að líta á blogg Eyjólfs, það er sem sagt á morgun sem fáum frí í stærðfræðitímanum ?

Sumir verða þá amk glaðir að geta léttilega horft á endursýninguna af ANTM eftir miðnætti í kvöld!


» 2 hafa sagt sína skoðun

15.11.2005 19:03:11 / tinna

Yof0e

Zapi, N1ggala, biggala, neinei ég er ekkert Tinna, bara einhvern sem finnst gaman að fíflast(tengist ekkert síðunni once again) sami og var að sýna ykkur hver var hver :Þ Gaman að þessu.
______________________
Sá sem tengist síðunni ekkert.


» 6 hafa sagt sína skoðun

13.11.2005 22:18:43 / jóhann

Silvía Nótt vann til tveggja verðlauna!

 Botninum er náð.

En á skemmtilegri nótunum þá er ekki hægt að neita því að Þorsteinn er algjör snillingur! :)


» 13 hafa sagt sína skoðun

10.11.2005 17:52:16 / jónatan

Mig langar líka að vita nokkuð

Hér er nokkuð sem mig langar að vita...

hverjir eru að fara í bústaðinn, hverjir verða á bílum og þar af leiðandi hvar er pláss?
ég held að þetta sé alveg bráðnauðsynleg umræða ef við ætlum að komast í borgarfjörð... jæja... allavega ef ég ætla að komast í borgarfjörð :P

» 22 hafa sagt sína skoðun

10.11.2005 00:07:34 / tommi

Hlutir sem mig langar að vita

-Hlutfall ljóshærðra í okkar bekk
-Meðalþyngd í R-bekknum
-Hver í fjandanum er í Y-bekknum
-Hvort hægt sé að mæla stærðfræðihroka X-bekkjarins
-Hvernig íslensku kennarinn fékk starfið sitt
-Hversu oft ákveðinn aðili í bekknum kommentar á bloggsíður á dag
-Af hverju við erum aldrei í prófum nema í síðustu viku þegar við vorum í svona 4 í röð
-Hver horfir á Omega
-Hvort Bin Laden sé í alvörunni til
-Hvort einhver hafi móðgast við að lesa þetta

» 11 hafa sagt sína skoðun

09.11.2005 17:07:12 / hildur

Pressa !

Vegna gífurlegrar pressu frá Þóru þá neyddist ég til að skrifa eitthvað agalega sniðugt. En vandamálið er að ég hef ekkert að segja þannig að þetta verður enn ein steikta innihaldslausa færslan frá Hildi. Það er nú bara gaman af þeim er það ekki?

Það var gaman í skólanum í dag. Þrátt fyrir að það hafi verið lífræn efnafræði tilraun. Ekki spurja mig afhverju mér fannst gaman, ég veit það ekki sjálf...ef einhver hefur skýringu á hegðun minni þá má hann endilega hafa samband því ég hef bara enga hugmynd hvað í fjandanum er í gangi8|

Þetta langar mig í NÚNA:

  • ís
  • 10 í öllum prófum héðan í frá (jólaprófin meðtalin)
  • nýja diskinn með Hjálmum
  • Njálu innbyggða í hausinn á mér þannig að ég þurfi ekki að lesa hana.
  • eða bara öll fögin kannski frekara
  • tebó
  • bekkjarhitting

Já nú skaltu efna loforðin Þóra og kommenta eins og þú fáir borgað fyrir það:D

Hildur-í góðu skapi í dag...og vonandi á morgun líka;)-


» 15 hafa sagt sína skoðun

08.11.2005 16:45:00 / hildur

Heimadæmin !!!

Nennir einhver plís að segja mér að ykkur finnist heimadæmin í stæ. aðeins of erfið?? Eða er ég bara svona soðin í heilanum að ég geti ekki fattað þetta? :cry:

hehe, vá hvað ég hlýt að vera spennandi manneskja, þetta er í annað skipti í röð sem ég blogga um stærðfræði. Ég er orðin heilaþvegin af því að hafa alltaf stæ í fyrsta tíma.

Adios (fyrst við erum komin út í þennan pakka) hasta maňana :D


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2