Sjötti bekkur U (2006 - 07)

Því Jói hefur ekkert betra að gera

30.10.2006 14:03:34 / tommi

Deilan um kjarnorkuáætlun Írana:Tvöfölduð geta til úranauðgunar

Hvaða sjúki gaur fer að nauðga úrum?


» 18 hafa sagt sína skoðun

22.10.2006 13:41:38 / jóhann

Stórskemmtilegur fimmtudagur +föst - Uberlöng myndafærslah - 3 ferðir

Jæja klárlega kominn tími á nýja færslu á þessari síðu, metkommenta fjöldi eða eitthvað við síðustu, Hildur greinilega kann að gera færslur ;)

Jæja síðastliðinn fimmtudag eftir skóla ákvað Gunni að honum langaði að fara í hjólreiðatúr í kringum Reykjavík, og þar sem Gunni Kri fer þar förum við Valdi. Svo við kapparnir skelltum okkur beint eftir skóla á hjólin og lögðum af stað.

Veit hvað þið eruð að hugsa: "Þessi mynd var tekin fyrir mörgum árum" En nei þetta er Gunni í dag!

Jæja fyrst þurfti auðvitað að pumpa í dekkinn á nokkrum hjólum. Valdi var á hjóli litlu systur sinnar og Gunni að venju á hjóli mömmu sinnar. Fórum við því svo á hverfisbensínstöðina, tók reyndar óvenju langan tíma þar sem Valdi var ekki alveg að finna hvar átti að pumpa í dekkið, en hann náði því á endanum með hjálp frá Gunna enda er hann allvanur hjólreiðamaður.

Jájá Valdi lét bara Gunna um þetta

Jæja þá var ekkert í fyrirstöðu því að leggja af stað og byrjuðum að hjóla út ægisíðuna, vissum reyndar oft ekkert hvað við vorum en Gunni átti einmitt að kunna þessa leið 100% en tókst einhvern veginn að leiða okkur út í rassgat á tímum.

Gunni og Valdi settu smá sprell á svið fyrir myndavélina!

Hér erum við allir drengirnir nánast í upphafi ferðar, takið einmitt eftir því að Valdemar er fremstur, en það átti einmitt eftir að breytast talsvert þegar á leið!

Það var ágætis sól þegar við fórum í ferðina og hefði mátt blekkja menn að um gott veður væri að ræða en þökk sé Gunna lögðum við allir velklæddir af stað. Þess má geta að Gunni tók einmitt banana og orkustykki með sér í nesti.

Loksins hættum við svo að fíflast og fórum að gefa verulega í á hjólunum og fyrr en varir vorum við komnir í Kópavog sem var ekki á áætluninni. Gunni hafði sagt alla leiðina að hann vissi nakvæmlega hvar við værum og rétt áður en við komum að Víkingsheimilinu sagði hann að við værum að fara að koma að HK-heimilinu.

Hér á grindverkinu var skemmtilega stór kráka sem Valdi var svoleiðis skíthræddur við að hann stoppaði og fór af hjólinu, en áður en ég náði að taka mynd var hún flogin í burtu.

Hér var Valdi farinn að dragast verulega aftur úr og þurftum við stundum að stoppa og bíða eftir drengnum.

Nú var Valdi farinn að verða frekar pirraður á endalausu háði og gríni frá mér og Gunni og byrjaði að gefa smá í, ekki meira en það að hann var bara rétt fyrir framan okkur. Þá sáum við Gunni smá "afleggjara til hægri" og benti ég Gunna á hann og við fórum upp hann og stoppuðum og biðum. Þá hélt Valdemar bara áfram að hjóla án þess að fatta neitt, ætli það hafi ekki liðið um það bil mínútu áður en hann stoppaði og leit við. Þarna hélt hann að hann hefði týnt okkur og var mjög fyndið að sjá furðu- og hræðslusvipinn á honum. Svo nokkru seinna komum við úr felum.

Ef þið skoðið vel má sjá glitta í smá hvítt en þar er einmitt Valdemar að hjóla á fullu. Hann sagði okkur svo seinna að hann hefði verið að syngja og eftir minutu hefði hann farið að pæla í því af hverju enginn var að tala fyrir bakvið hann.

Valdi varð að stoppa og fá sér smá vatnssopa enda hafði hann tekið gífurlega á. Náðust því miður ekki myndir af því þegar Gunni gæddi sér á orkustykkinu í laumi.

Jæja svo var bara farið heim á leið eftir langan hjólatúr og gekk það áfallalaust fyrir sig. Reyndar gerðist eitt fyndið þegar við vorum að hjóla, göngustígur greindist í þrennt, til vinstri, beint áfram og til hægri. Leiðin sem við áttum að fara var hægri. Beint áfram var bara grashóll sem fór bara upp og upp og var mjög erfitt að hjóla eftir. Jæja Gunni vissi leiðina og valdemar var fremstur og spyr Gunna hvert átti að fara. Við vorum á nokkurri ferð og þá öskrar Gunni: "FARÐU TIL VINSTRI, VINSTRI" Þá fer Valdi í algjört panic og snýr stýrinu í allar áttir en ákveður óskiljanlega að hjóla beint áfram meðan við Gunni förum til hægri. Það var natturulega grindverk á milli okkar og í stað þess að stoppa og snúa við hélt valdemar bara áfram og virtist vera fara út í rassgat en náði svo eftir 2-3 minútur af því að hjóla upp grashól að komast aftur inn á göngustíginn. Því miður náðust ekki myndir af þessu atviki, mistök af minni hálfu!

Kapparnir eiginlega komnir á leiðarenda

Því næst var ákveðið að fara í sundferð út í neslaugina, þar hittum við margt gott fólk meðal annars hinn ofurheita Brynjar, meðlim Brunabandsins sem tók sig vel í speedo skýlunni. Annars vorum við aðallega bara í pottinum en Valdemar fór svo aðeins fyrr uppúr ásamt nýjum vini.

Hér komum við Gunnar að Valda og nýja félaga hans en þeir skelltu sér aðeins fyrr uppúr að óuppgefnum ástæðum.. Það var samt greinilegt að við vorum ekki velkomnir.

Svo daginn eftir á leiðinni i skolann vorum við félagarnir 4: Ég, Tommi,Valdi og Gunni á leið í skólann og fengjum hringingu um að það væri frí í fyrsta tíma, skelltum við okkur þá upp að perlu. En eins og ég reyndi að segja þeim þá var auðvitað lokað! En auðvitað fylgdu nokkrar myndir!

Svo þegar ég var að keyra hjá OgVodafone tók ég eftir nokkrum skuggalegum drengjum og ákvað að smella af mynd.

Hvar er Valli?

Alltaf svalir þrátt fyrir gífurleg vonbrigði með áætluðu perluheimsóknina.


» 47 hafa sagt sína skoðun

13.10.2006 13:46:08 / hildur

ÁRSHÁTÍÐ :D

Já krakkar mínir. Þessi árshátíð og dagurinn allur var svo vel heppnuð að mínu mati að ég bara trúi því ekki. Ég tók nokkrar myndir og þær eru inn á myndaalbúmi flassaranna.


Já það er gott að vera liðugur...Twister meistarar 6U Inga og Valdi



Men in black mættu á svæðið að sjálfsögðu :D


Og að sjálfsögðu var stuð á liðinu heima hjá Gauju


Valdi og Gunni eru vinir :D



Gauja tók Gauju-múvið á þetta...mætti aðeins misskilja þessa mynd ;)

Svona er þetta nú...augljóst að fólk var að skemmta sér og það er fyrir öllu. Takk Gunni fyrir geggjað hádegispartý og Gauja fyrir klikkað fyrirpartý. Þetta var bara snilld.


» 57 hafa sagt sína skoðun

11.10.2006 20:19:40 / jóhann

Morgunpartey @ Frostaskjóli 81

Já Gunni Kri heldur upp á mikla skemmtun í fyrramálið. Drengur góður en feiminn við að tjá sig hér á bloggsíðunni greyið svo það kemur i mitt hlutverk að útskýra hvar í fjandanum þetta pleis er.

Gunni Kri alltaf flottur fyrir dömurnar

Fyrir þá fáu sálir sem vita ekki hvaðan Gunni Kri er þá er hann vesturbæingur í húð og hár. Kappinn á heima á Frostaskjóli 81, þriggja hæða einbýlishús þar sem hann hefur búið frá fæðingu. Hann fæddist á landsspítalnum aðeins 12 merkur og 30 cm. Fyrst átti hann að heita Brynjólfur Gunnar Kristjánsson en mömmu hans fannst fyrsta nafnið ekki passa við hin. Gunni fæddist yngstur inn í 5 manna fjölskyldu og þótti afar myndarlegt barn. Þegar Gunni var 6 ára fékk hann fyrst að kynnast vináttunni þegar hann kynntist Valdemari en þeir hafa verið óskiljanlegir síðan þá.

Neeeeeih heyrðu mig nú, nú er ég aðeins að flippa, dýrka hann ekki það mikið að ég fari að koma með ævisöguna.

Frostaskjól og Granaskjól er reyndar frekar flókið dæmi en Frostaskjól liggur utan um Granaskjól. Fyrir þá sem vita hvar Una á heima þá getiði bara mætt til hennar enda bauðst hún til þess að fylgja hverjum sem er heim til Gunna. Fyrir hina þá snýst þetta allt um Grandaskóla en jú það er einmitt skólinn sem Gunni Kri gekk í ungur að árum

Gunni Kri þegar hann var ungur og saklaus, þess má geta að hann var einmitt með Ron Weasley í bekk, skemmtileg tilviljun nokk.

Jæja koma mér að því hvernig á að komast heim til hans. Byrjar allt með að koma sér að Byko í vesturbænum, sem er hinum megin við götuna hjá stórverslun Nóatúns, en þar á milli er hringtorg, eigið að fara til vinstri af því hringtorgi ef þið komið frá hringbraut. Þá eruð þið komin út á Granda og stefnið á Eiðistorg, þar koma hinir ýmsu Grandar og þegar þið sjáið Keilugranda(var að leiðrétta) er kominn tími á að beygja til vinstri. Þar keyriði í smástund áfram, sjáið grandaskóla(augljóst þegar þið sjáið skóla ef þið vitið ekki hvaða skóli grandaskóli er).

Svo takiði fyrstu! beygjuna til hægri þegar þið eruð komin framhjá grandaskóla og keyrið áfram í einhverjar 5 sec. Svo þegar þið komið að temmilega stóru bílastæði milli Grandaskóla og rólóvölls þá er kominn tími á að leggja því ef þið komið að húsinu og leggjið í stæðinu hjá Stjána glæp, pabba Gunna þá gerist eitthvað slæmt. Hefur oftar en ekki hótað að draga bílinn manns í burtu. Jæja farið úr bílnum og farið á hornið á grindverkinu á rólóvellinum sem ætti að vera næst ykkur. Þá ættuð þið að sjá botnlanga á vinstri hönd. Þar skuluð þið labba inn og þar inni er litið hringtorg og þið ættuð að sjá hús Gunna á þessari skemmtilegu mynd:

Ég mana ykkur að leggja þar sem X-ið er.

Mér þykir það jafnframt mjög leiðinlegt að tilkynna ykkur að þið séuð mjög treg ef þið getið ekki áttað ykkur á því hvar Gunni á heima eftir þessa óaðfinnanlegu teikningu!!

Einnig ekkert að óttast með mat, þó að elskulega móðir Gunna hafi boðist til að vera með veitingar þá er Lilja Karen buin að segjast redda því svo það er allt í góðu.

Einnig er Una búin að lýsa því yfir að það verður spilað og ég mun fara yfir með playstation tölvu systur minnar í kvöld ef ég finn hana einhvers staðar hér. Á einhver spil hérna líka og svo gauja missi sig ekki þá tek ég twister með, ef ég finn það auðvitað :)

Hlakka gífurlega til að sjá allan bekkinn á morgun, -10 auðvitað :)


» 15 hafa sagt sína skoðun

10.10.2006 00:06:42 / tommi

Lársfártíðarpagur mæsda limmtukag

OK ég hef staðfestar heimildir um að 3-S, 3-J og 4-F séu búin að skipuleggja árshátíðardaginn sinn og ég spyr bara hvað erum við að fara að gera? Ég ætla að vona að hún Lilja sé með eitthvað í pokanum því annars fer ég að heimta endurkosningu;) Ég ætla líka að vona að fólk sé eitthvað búið að reyna að plögga fyrirpartýjum heima hjá sér þar sem að salirnir geta verið ansi dýrir eins og þið öll vitið. Ég er náttlega á hálum ís varðandi partýhöld eftir Konráðs-atvikið í vor en ég mun náttlega biðja fallega um hvort að það sé möguleiki.

Mér fannst allavega morgunpartýið hjá Lilju Ósk í fyrra skemmtilegt með Buzz leiknum þarna og good sjitt brownies köku og mæli ég allavega með einhverju svoleiðis aftur. Síðan væri ég líka til í eitthvað svona hresst eins og sund eða eitthvað en paintball er víst ansi dýrt og stelpur fara víst ekki í paintball fyrir böll að sökum marbletta. Síðan væri náttúrulega best ef einhver snellingur héldi eftirpartý þar sem að "the man" hefur takmarkað þessi böll niður í kl. 1. 

Síðan mæli ég líka með reglulegum sætaskiptum þar sem að sita í sama sæti allt árið er allsvaðalega leiðinlegt en einnig fær það bekkinn til að mynda meiri heild og svona. Jæja kallinn fer núna að taka allnæter á etta fyrir stærðfræði og íslensku en munið bara eitt orð til að láta ykkur líða aðeins betur í prófalestri: DJAAAAAMMMM


» 18 hafa sagt sína skoðun