(Eftir Jóhann)
Sælt veriði fólk mitt gott. Þetta er bekkjarráðsformaðurinn fyrrverandi sem kallar út til ykkar en já ég hef oft haft nokkuð margar pælingar og margt sem fer í taugarnar á mér og ætla ég bara skella því hér inn !
- Af hverju í fjandanum er oftast oddatala í skinkupökkum? Þetta er alveg fáránlegt, maður er að fara kannski fár sér tvær samlokur í grillinu og þá er bara eftir EIN sneið af skinku. Ég veit ekki hve oft ég hef lent í þessu en þetta ætti svo sannarlega að taka til athugunar.
- Tvíburar ! Af hverju eru tvíburar til yfir höfuð? Ég gjörsamlega hata þegar ég held ég sjái Ármann Jakobsson minn fyrrverandi kennara og fer upp að honum og ætla kannski að heilsa honum. Þá kemur þessi furðunarsvipur á manninn og oftar en ekki: "Hver ert þú?". Þá er þetta tvíburabróðir hans Sverrir ! Hata svona. Ótrúlega kjanalegt. Og bara lika vitleysa. Hata þetta.
- Af hverju er bananahýði utan um banana? Ég pæli ótrúlega oft í þessu og þetta fer svo í taugarnar á mér. Maður grípur kannski einn banana í skólann og ætlar að éta hann á leiðinni. Nei þá er maður með eitthvað ógeðslegt bananahýði afgangs. Af hverju er ekki hægt að éta það líka án þess að beinlínis kasta upp? Svo tala ég nu ekki um þegar þeir líta út fyrir að vera gulir og fínir en eru svo skemmdir að innan???
- Hafiði aldrei lent í því að skeiðin sem fylgir með skyrinu ykkar brotni? Þetta er svo óborganlegt og að maður láti bjóða sér þetta er ótrúlegt. Ég hef þrisvar þurft að fara aftur út í búð til að skipta um skyr útaf því að skeiðin er brotin. Þetta er bara svo pirrandi, þoli það ekki.
- Af hverju erum við í stærðfræði þegar við höfum reiknivélar?
- Stundum velti ég því fyrir mér af hverju himinninn sé blár en svo held ég bara áfram að borða skyrið mitt
- Tyggjó! Hafiði pælt í þessu. Ég allaveganna hata það. Það hafur engan fokking tilgang! Maður setur það upp í sig tyggur verður fokking þreyttur í kjálkanum og spýtir því út. Pointless! Meina þar ekki eins og maður fái einhverja næringu eða eitthvað. Tyggjó hefur engan tilgang. Nema þegar óþolandi fólk er að láta einhver óþolandi hljóð heyrast með því að blása óþolandi kúlur. Meina hver hefur ekki lent í því að vera í prófi og einhver gaur er með tyggó og maður hugsar (Gaur hentu bara fokkings tyggjóinu) FOKKING ÓÞOLANDI! AAARRRRWWW. Allaveganna ég ætla að kíkja inn í ískáp og gá hvort að það sé til skyr.
- Af hverju er vond lykt af prumpi??? Vitiði hvað það myndi auðvelda lífið ef maður gæti alltaf bara fretað lyktarlaust??? Og ef það myndi aldrei heyrast neitt! Ég hef oft lent i þvi að einhver stelpa er beint fyrir aftan mig þegar ég læt vaða og það er ótrúlega faranlega vandræðilegt. Maður er labbandi um og lítur i kringum sig, sér engan og lætur vaða en þá labbar einhver akkurat fyrir hornið !! Þetta er gjörsamlega óþolandi þegar manni er ekki sýnt neitt tillit!
- Þeir sem þekkja mig myndu vart kalla mig mann sem pirrast yfir mörgu. En af hverju eru ekki til geimverur? Af hverju segja allir að ég sé heimskur, brjálaður eða algjör rugludallur þegar ég tala um að kannski sé líf annars staðar i heiminum. Meina hvða er HINUM megin við sólina ???? Ég er nú í stjörnufræði svo ég tel mig vita svona hluti og þoli ég ekki þegar einhverjir neita einhverju sem þeir vita ekkert um!
- Af hverju þarf maður að læra ljóð utanað þegar maður á Ljóðabók?
- Af hverju þurfa geimverur endilega að vera litlir grænir kallar???? ÞÆR GETA ALVEG EINS VERIÐ EINS OG VIÐ! SKILJIÐI. Mér finnst bara óþolandi þegar það er sagt að þær verði að vera einhver skrýmsli eða með einhverja útlitsgalla eins og einn Trekkies vinur minn heldur fram að þær verði að vera.
- Ég á það til að velta því fyrir mér af hverju allt fallega fólkið sé endilega fallegt? Af hverju er ekki ljóta fólkið fallegt? og Fallega fólkið ljótt? Hvað myndi gerast ef þetta myndi allt i einu breytast?
- Af hverju er vatn glært en ekki t.d. svart?
- Kaffi! Já þið vitið hvað ég er að fara tala um. Hver hefur ekki lent í þessu! Ég var að læra um daginn undir stjörnufræðipróf sem er geðveikt erfitt. Ég var búinn að stúta svona 8 kaffibollum á þremur tímum. Ég er þúst búinn að hella mér upp á kaffi. Sem sagt kaffið er tilbúið. Átti alveg nóg eftir og fór í herbergi að læra. Svo þegar ég kom hálftíma síðar og þarf helvítis einn skammt í viðbót er þá ekki búið að TÆMA KAFFIKÖNNUNA!!! Ég var brjálaður !! Þá hafði systir min komið og fengið sér sopa!!! Sem sagt hún hafði komið og klárað allt kaffið!!! Þá þurfti ég að eyða 15 mín í að hella aftur upp á kaffi !!!! Sem sagt þetta tók allan daginn!! Óþolandi!
- Sko omfg!!! ég hélt ég hefði heyrt það allt en svo var ég að lesa eitthvað félagssálfræði í gær, hvað i fjandanum er það?!?! Varla er það blanda af félagsfræði og sálfræði?!! það meikar ekki fucking sense.
- Er flugmaður og flugumaður ekki það sama?
- Ef Ljósastaur er hærri en götuljós og Fjall er hærra en ljósastaur er þá Fjallið hærra en götuljós?